Eurotrash keppni....

Er í þessum töluðu orðum að horfa með einu auganu á þessa keppni í sjónvarpinu og nú er þetta lag með Seth Sharp að hljóma og hef ég sjaldnar séð jafn kjánalegri hóp á sviði eini ljósi punkturinn er Pétur Jesú og Stebbi Stuð í bakröddum og guttinn sem að er helvíti beinskeyttur en það sem að ég ætlaði að ræða um var þessi var þessi hundleiðinlegi maður (biðst afsökunnar ef ég er að særa einhvern) Gísli Einarsson en var ekki hægt að finna einhvern skárri mann með henni Ragnhildi Steinunni í þennann þátt?? Til allrar hamingju er hann bara með innslög en þau eru bara mjög vond þarna áðan var hann í einhverju teiti hjá hestamönnum á Broadway og þar hélt hann einhverja keppni sem að virkaði kjánaleg þó svo að þetta sé örugglega gert í svona hestamanna teitum...

Svo fór ég að hugsa hvernig ætli það sé að vera upptökumaður fyrir þennann mann hann á erfitt með tal í beinni og hvursu mikið af myndbands spólum sé til með mistökum hjá þessum manni??? ef einhver sem að les þetta er að vinna á rúv þá máttu endilega tékka á því!!!

 En af lögunum þá á Baggalútur skilið að fara áfram útaf kappanum með kústinn.. (hvað ætli það hafi tekið langann tíma að stilla hann???) annars voru þetta vond lög og mér finnst merkilegt afhverju það er verið að bjóða okkur upp á svona RUGL

 Bubbi í kveld á Nasa ég verð þar en þú???

9

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband