Veit ekki alveg hvað ég á að skrifa hérna....

Síðasta helgi var hreint út sagt stórmögnuð en hún byrjaði þanngi að ég var ræstur klukkan 10 til að redda mannskapi til að koma pottinum niður... Já sénsinn að maður finni einhvern sem að er til í að kíkja heim í morgunkaffi til að henda niður einu 350 kg potti... en ég náði einum manni honum Bigga til að koma og var það mikið fjör... En um kl 14 hófst fjörið fyrir alvöru þá mætti hann Kobbi trukkakall með stegginn hann Palla svona líka fínt klæddann í kvenmannsföt, í rútu einni og ferðinni heitið í Vínbúð eina til að kaupa áfengi... svo var farið með hann útum allar trissur og hann látinn gera hluti sem að ekki einu sinni ég myndi gera blindfullur!! En eftir allt húllum hæið var farin önnur ferðin í ríkið og verslað meira af guðaveigum en þá voru menn orðnir helvíti hífaðir.... Kobbi þú veist hvern ég er að tala um....

Um kveldið var svo blásið til heljarinnar partýi í einhverri blokkaríbúð í hafnarfjörður þar sem að var mikið um söng , gleði og drykkju, undirritaður sá þó aðalega um drykkjuna.

Skemmst er frá því að segja að heilsan daginn eftir var í tæpasta lagi og einhverjir létu þau orð falla að ég hafi verið gegnsær, sel það eigi dýrara en ég keypti það. En ég hef því miður ekki náð að komast að því hvort að einhver hafi skráð mig í þessar prufur hjá Bubba og því veit ég ekki hvort að hann muni koma í heimsókn til mín í vinnu eða heim en eitt er alveg víst ég fer ekki til hans!!!

Um helgina verða líklega einhverjir bjórar drukknir sökum þess að það er hreint út sagt stórleikur í Enska Boltanum um helgina þegar að Arsenal taka á móti mínum mönnum á laugardag kl 12:45 og mun vonandi gleðin ríkja hjá honum Bigga kallinum þegar að við munum horfa á leikinn þar en eitt er þó víst að það verður drukkið sama hvort það verði útaf sorg eða taumlausri GLEÐI!!!!!

 Þangað til næst

 Svenni (á leiðinni í ræktina....)


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Kobbi Trukkakall.....

Hæ hæ já Svenni minn ég veit um hvern þú ert að tala og þessi helgi var alveg snilld og næsta ekki verri hehe     verðum í spotta kallinn minn.....

kveðja Kobbi Trukkakall.....

Kobbi Trukkakall....., 4.11.2007 kl. 21:19

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband